FH – ÍA á sunnudag

FH – ÍA á sunnudag

Mótherji:ÍA    Hvar: Kaplakrikavöllur    Hvenær: Sunnudaginn 8.maí    Klukkan:19:15 

Fyrsti heimaleikur sumarsins er á sunnudaginn gegn Skagamönnum. Þetta verður hörkuleikur og mikilvægt að strákarnir fái góðan stuðning. Mætum tímanlega á völlinn og látum vel í okkur heyra. Allir á völlinn og áfram FH!


20150805-DSC_3294
BAKHJARLAR: 
Þeir sem eru nú þegar Bakhjarlar eða vilja skrá sig geta sótt Bakhjarlakort á skrifstofu knattspyrnudeildar í Kaplakrika fimmtudaginn 5.maí (Uppstigningardag) kl 11:00 – 13:00, föstudag á skrifstofutíma og á laugardag kl 11:00 – 13:00. 
Við mælum með því að sem flestir sæki Bakhjarlakortin fyrir fyrsta leik því það er hætt við því að það myndist löng röð við Bakhjarlainngang á fyrstu leikjum sumarsins. 
Við munum halda áfram með það fyrirkomulag sem var í Sjónarhól í fyrra. Það er að segja, salurinn opnar fyrir Bakhjarla klukkutíma fyrir leik þar sem matur verður í boði ásamt því að einhver úr þjálfarateyminu og jafnvel gestir mæta á svæðið og fara yfir leikinn sem framundan er. Með þessu vonumst við til þess að fleiri Bakhjarlar mæti tímanlega á völlinn og drekki í sig stemninguna. Í hálfleik verður svo boðið upp á kaffi ásamt veitingasölu.

 

IMG_20160506_144700

 

GRILL – Mætum tímanlega!! 

Það verður heldur betur líf og fjör fyrir leikinn gegn ÍA á sunnudag. Klukkutíma fyrir leik verða grillaðir hamborgarar og Fish and chips vagninn verður á staðnum. Mætum tímanlega á völlinn á sunnudag. 

 

IMG_2124

FH – Radio: 
Okkar menn í FH – Radio verða að sjálfsögðu á vellinum á sunnudag. Slóð á útsendinguna er á facebook síðu FHingar.net 

 

11014939_921601731196372_4605329185026370183_n


Pyngjan:
Að lokum viljum við benda FH-ingum á að nú geta allir sloppið við það að standa í miðasöluröð á leikdag með því að nota Pyngjuna, sem er ný gr

Aðrar fréttir