FH-ingar að slá í gegn á Rey cup

FH-ingar að slá í gegn á Rey cup

4 flokks strákarnir leika í fyrramálið klukkan 09.00 gegn enska félaginu WBA. Fyrsti leikur liðsins í mótinu var einmitt gegn WBA og þá steinláu okkar menn 1-5 en vonandi gengur betur í morgun.

3.flokkur kvenna leikur úrslitaleik klukkan 10.00 gegn Þrótti eða í kjölfar 4.flokksleiksins.

Klukkan 11.00 leikur svo 3 flokkur karla gegn IFK Gautaborg en þessi lið gerðu 2-2 jafntefli í fyrsta leik mótsins. IFK Gautaborg sigraði einmitt Gothia Cup mótið í þessum árgangi fyrir réttri viku síðan.

Allir þessi leikir verða á Laugardalsvellinum og hvetjum við alla FH-inga sem tök hafa á að mæta og fylgjast með krökkunum.

Aðrar fréttir