
FH-ingar í U-16 landsliðum Íslands.
Við FH-ingar eigum 1 fulltrúa í U-16 drengja sem er Einar Örn Sindrason. Munu þeir æfa tvisvar sinnum og mæta síðan A-landsliði kvk, sem einmitt er að undirbúa sig fyrir mikilvæga leiki við Þýskaland og Frakkland.
Í U-16 stúlknahópnum eigum við 3 fulltrúa. Það eru þær Diljá Sigurðardóttir, Embla Jónsdóttir og Sylvía Blöndal. Þær verða í æfingahelgi dagana 27-29 maí. Hkd FH óskar krökkunum til lukku með þennan áfanga og eiga þau bjarta framtíð fyrir sér í handboltanum.