FH-ÍR  fimmtudag 2. okt kl 19.30

FH-ÍR fimmtudag 2. okt kl 19.30

TOPPSLAGUR Í KRIKANUM

Það verður hörkuleikur á fimmtudag þegar ÍR-ingar koma í heimsókn í Kaplakrika.

Hafnarfjörður gegn Breiðholtinu, það verður ekkert gefið eftir.

 

Húsið opnar kl: 18.30 með funheitri súpu fyrir Muggara, hægt að skrá sig í Mugg á staðnum.

Muggarar spá í spilin og segja hver öðrum hvernig leikurinn fer.

Brandarahornið opið fyrir þá sem vilja segja brandara.

Siggi Danco mætir á grillið með FH heiðursborgara fyrir þá sem vilja alvöru borgara… eða tvo

Poppkornið flæðir um gangana fyrir krakka á öllum aldri.

Troðfull sjoppa af girnilegu gómsæti og heitt kaffi á könnunni.

 

Andri Berg lofar marki og Ágúst Elí og Brynjar Darri lofa að vera í marki.

 

Það verður gleði, fegurð og alvöru handbolti á fimmtudag í Kaplakrika – VERTU MEÐ.

 

Miðaverð.

Fullorðnir = 1.000 kr.

15 ára og yngri = Frítt

Aðrar fréttir