FH – KR á sunnudag kl 20:00

FH – KR á sunnudag kl 20:00

Mótherji: KR     Hvar: Kaplakrikavöllur   Hvenær: Sunnudaginn 19.júlí klukkan 20:00 

Það verður toppslagur í Pepsi-deildinni á sunnudaginn þegar við FH-ingar fáum KR í heimsókn í Kaplakrika. FH á toppnum með 24 stig og KR í öðru sæti með 23 stig. Stuðningurinn hefur verið mjög góður í síðustu leikjum og vonandi verður áframhald á honum því strákarnir þurfa svo sannarlega á stuðningnum að halda. Allir á völlinn og áfram FH!

 

IMG_2124
FH – Radio 
Okkar menn í FH – Radio verða að sjálfsögðu á vellinum á sunnudag þegar FH mætir KR. 
Slóð á útsendinguna er á facebook síðu FHingar.net 

 

11014939_921601731196372_4605329185026370183_n
Pyngjan 
Í lokinn viljum við benda FH-ingum á að nú geta allir sleppt við það að standa í miðasölu röð á leikdag. Pyngjan er ný greiðsluleið fyrir Pepsi-deildina. Nú er hægt að nota Pyngjuna sem er app til að kaupa miða á heimaleiki nokkurra félaga í Pepsi-deild karla og er FH þar á meðal. Hér er hægt að kynna sér þetta betur.

Aðrar fréttir