FH – Lindersberg í dag

FH – Lindersberg í dag

FH leikur í dag fyrsta leik sinn í 4-ra liða  mótinu í Eskilstuna í
Svíþjóð þegar strákarnir mæta sænska liðinu Lindersberg, sem er í 8.
sæti sænsku úrvalsdeildarinnar.  Það er ljóst að sænska liðið er
erfiður andstæðingur og að okkar strákar þurfa að eiga virkilega góðan
leik til að ná sigri.


Kristján Andrésson þjálfari Guif ásamt strákunum, Össi, Óli Gúst og Sigurgeir

FH-liðið er mikið breytt frá síðasta leik fyrir jólafrí þar sem mikil
meiðsli hrjá hópinn auk þess sem Ólafur Guðmundsson er á fullu með
landsliðinu.  Á sjúkrabekknum eru þeir Bjarni Fritzson og Hermann
Björnsson, sem fóru ekki með liðinu til Svíþjóðar.  Auk þess hvíla í
dag vegna smávægilegra meiðsla þeir Ólafur Gústavsson, Ásbjörn
Friðriksson og Bjarki Sigurðsson.  Þeir munu þó að öllum líkindum taka
þátt í næstu leikjum.

Hópurinn hefur komið sér afar vel fyrir í Eskilstuna og eru allir
ánægðir með allan aðbúnað.  Matur er góður og afar vel hugsað um hópinn.

Nánari fréttir af mótinu má sjá á vefslóðinni  www.guif.nu

Auglýsing og myndir frá Svíþjóð á vefsíðu Svíanna

http://www.guif.nu/main.php?menuId=1399
http://ekuriren.se/sport/handboll/1.600013

Aðrar fréttir