FH mætir Akureyri í Bikarnum

FH mætir Akureyri í Bikarnum

Í gær var dregið í 16 liða úrslit Eimskipsbikarsins í handknattleik og
fóru leikar þannig að FH gerir sér ferð norður í land til að mæta
Akureyrarpiltum 15. eða 16. nóvember.

Þessi lið þekkja orðið hvort annað vel enda spilað fjölda æfingaleikja á undirbúningstímabilinu og áttust þau við í deildinni í siðustu viku þar sem FH sigraði örugglega nyrðra.

Það er þó hörkuleikur framundan og ljóst að Akureyringar vilja hefna ófaranna frá síðasta leik. Bikarinn hefur ávallt sinn sjarma og ljóst að barist verður til síðasta blóðdropa því hvorug lið hafa áhuga á að falla úr keppni strax í 16 liða úrslitum.

Áfram FH

Aðrar fréttir