
FH sækir Val heim í Eimskipsbikarnum

Dregið var í undanúrslit Eimskipsbikarsins í dag. Hjá körlunum voru í pottinum við FHingar, Valur, Grótta og Selfoss.
FH sækir Val heim í Vodafone höllina að Hlíðarenda og Selfoss fær Gróttu í heimsókn. Það er því ljóst að 1. deildar lið mun fara alla leið í úrslit bikars því Grótta og Selfoss leika bæði í 1. deild.
Við FHingar eigum krefjandi verkefni framundan enda Valsliðið mjög sterkt og eru ríkjandi bikarmeistarar. Það er því stórleikur framundan!
Leikirnir verða leiknir 8. febrúar á komandi ári.
Áfram FH!