FH sigraði ÍBV
Leikurinn var ágætlega leikinn af hálfu beggja liða og færi á báða bóga. Kristín Erna Sigurlásdóttir kom ÍBV yfir í fyrri hálfleik en þær Aldís Kara, Margrét Sveinsdóttir og Sigríður Siemsen skoruðu allar á 20 mínútna kafla í upphafi síðari hálfleiks. Lokatölur 3-1.
Ef einhver skyldi ekki vita það þá er myndin hér að ofan af hinni geðþekku Sigríði Siemsen. Sigga er í öftustu línu liðsins og leiðist ekki að skora stöku sinnum. Í kvöld skrúfaði hún boltann í netið beint úr hornspyrnu.
Þar með hafa okkar stelpur lokið leik í 1-2 sæti með 12 stig og 8 mörk í plús.
Nú verður stutt hlé hjá liðinu eða fram að fyrsta leik í Íslandsmótinu. Þá fara stelpurnar í heimsókn í Frostaskjólið og mætir liði KR. Leikurnn fer fram á Uppstigningadag, fimmtudaginn 13. maí kl. 14:00