
FH sigur í Árbænum í dag!


Fylkishöll, laugardaginn 4. október 2008, kl. 16:00
FH stelpurnar sóttu 2 mikilvæg stig í Árbæinn í dag þegar þær lögðu Fylki með 5 mörkum. Staðan í hálfleik var 13-11, Fylki í vil.
Fyrri hálfleikur
Stelpurnar okkar virtust hreinlega ekki mættar til leiks í fyrri hálfleiks og það var því lið Fylkis sem leiddi nánast allan hálfleikinn. FH átti stuttar skorpur en mikil deyfð var yfir stúlkunum. Hálfleikstölur 13-11, Fylki í vil, og miðað við spilamennsku hálfleiksins áttu stelpurnar auðveldlega að geta snúið leiknum sér í hag.
Seinni hálfleikur
Stelpurnar byrjuðu af miklum krafti, náðu að jafna og komast yfir 15-13 áður en Fylkir skoraði sitt fyrsta mark. Eftir það var leikurinn í höndum FH og í raun aldrei spurning hvort liðið færi með sigur af hólmi. Stelpurnar náðu upp sinni sterku vörn og náðu þannig að brjóta niður andstæðinginn. FH-sigur staðreynd, 23-28.
Niðurstaðan
Niðurstaðan var frábær! Tvö stig komin til viðbótar og liðið því í 2.-4. sæti N1 deildarinnar ásamt Val og Haukum. Sterk vörn í seinni hálfleik lagði grunninn að öruggum sigri!
Markaskorarar FH
Guðrún Helga Tryggvadóttir 7
Hafdís Inga Hinriksdóttir 6
Ragnhildur Rósa Guðmundsdóttir 6
[aðrir markaskorarar koma inn þegar frekari upplýsingar um leikinn eru komnar í hús]
Markaskorarar Fylkis
Sunna Jónsdóttir 6
[verður uppfært]
