FH-stelpur á æfingum með yngri landsliðum
Um komandi helgi fara fram æfingar hjá U17 og U19 ára landsliðum Íslands. Þjálfarar liðanna, þeir Þorlákur Árnason og Ólafur Guðbjörnsson, hafa boðað eftirfarandi FH-inga til æfinga.
U17: Aldís Kara, Guðný Tómasdóttir, Sveinbjörg Andrea Auðunsdóttir og Ýr Steinþórsdóttir. Þær Aldís, Guðný og Sveinbjörg (Sissa) hafa æft reglulega með liðinu í vetur en nú bætist Ýr í hópinn.
U19: Birna Berg, Iona Sjöfn, Sara Atladóttir og Sigrún Ella Einarsdóttir. Stelpurnar hafa allar æft reglulega með liðinu í vetur.