FH-Stjarnan Olísdeild karla

FH-Stjarnan Olísdeild karla

Síðasti leikur strákana fyrir landsleikjafrí. Næsti heimaleikur er ekki fyrr en 17 nóvember.

Strákarnir sigruðu Akureyri í síðustu umferð í frábærum leik, sitja í 3 sæti Olísdeildarinnar og eiga skilið að fá fullann Kaplakrika af hvetjandi FH-ingum.

Stjörnumenn eru með efnilegt lið og hafa verið að spila vel í deildinni þannig að við FH-ingar þurfum að eiga toppleik bæði á gólfinu og á pöllunum til að ná sigri.

 

NÚ MÆTA ALLIR !

 

Fimmtudag 23. okt kl: 19.30 í Kaplakrika

 

Muggarar hittast í súpu fyrir leik og spá í spilin.

Kaffi og kruðerí í hálfleik fyrir skráða Muggara

 

FH borgarar á vægu verði beint af grillinu góða

 

Popp og kók fyrir káta krakka á öllum aldri í sjoppunni.

 

Aðeins 1.000 kall inn fyrir fullorðna og frítt fyrir 15 ára og yngri.

(Skráðu þig í Mugg og þú færð frítt inn fyrir alla fjölskylduna í allan vetur, ásamt öðrum fríðindum)

 

Hvetjum alla krakka í yngri flokkum að mæta í FH búningnum sínum, taka pabba, mömmu, afa og ömmu með og hvetja FH áfram.

 

Það verður gleði, fegurð og hörku handbolti í Kaplakrika á fimmtudag.

 

Vertu með !

 

ÁFRAM FH

Aðrar fréttir