FH – Valur 5.ágúst
Mótherji: Valur Hvar: Kaplakrikavöllur Hvenær: Miðvikudaginn 5.ágúst kl 19:15
Næsti leikur er erfiður leikur, en þá koma Valsmenn í heimsókn. Hjá Val stýrir skútunni fyrrum þjálfari okkar FH-inga Ólafur Jóhannesson. FH er á toppnum eftir þrettán umferðir í Pepsi-deild karla og það er nákvæmlega staðurinn sem Fimleikafélagið vill vera á þegar mótið klárast í byrjun október. Við hetjum FH-inga til að fjölmenna og láta vel í sér heyra! Áfram FH!
Pyngjan
Í lokinn viljum við benda FH-ingum á að nú geta allir sleppt við það að standa í miðasölu röð á leikdag. Pyngjan er ný greiðsluleið fyrir Pepsi-deildina. Nú er hægt að nota Pyngjuna sem er app til að kaupa miða á heimaleiki nokkurra félaga í Pepsi-deild karla og er Fh þar á meðal. Hér er hægt að kynna sér þetta betur.
FH – Radio
Okkar menn í FH – Radio verða að sjálfsögðu á vellinum þegar FH mætir Val.
Slóð á útsendinguna er á facebook síðu FHingar.net