FH – Víkingur Ó

FH – Víkingur Ó

Mótherji: Víkingur Ó
Hvar: Kaplakrikavöllur 
Hvenær: Mánudaginn 30.maí 
Klukkan:19:15 

Það er heldur betur toppslagur á mánudag þegar við FH-ingar fáum Víking Ólafsvík í heimsókn í Kaplakrika. FH og Víking Ó eru jöfn að stigum í 2 og 3 sæti svo þetta verður hörkuleikur og mikilvægt að strákarnir fái góðan stuðning.

Mætum tímanlega á völlinn og látum vel í okkur heyra.

Allir á völlinn og áfram FH!

20150805-DSC_3294

BAKHJARLAR: 
Við munum halda áfram með það fyrirkomulag sem var í Sjónarhól í fyrra. Það er að segja, salurinn opnar fyrir Bakhjarla klukkutíma fyrir leik þar sem matur verður í boði ásamt því að einhver úr þjálfarateyminu og jafnvel gestir mæta á svæðið og fara yfir leikinn sem framundan er. Með þessu vonumst við til þess að fleiri Bakhjarlar mæti tímanlega á völlinn og drekki í sig stemninguna. Í hálfleik verður svo boðið upp á kaffi ásamt veitingasölu.

IMG_2124

FH – Radio: 
Okkar menn í FH – Radio verða að sjálfsögðu á vellinum á mánudag. Slóð á útsendinguna er á facebook síðu FHingar.net 

 

11014939_921601731196372_4605329185026370183_n
Pyngjan 
Að lokum viljum við benda FH-ingum á að nú geta allir sloppið við það að standa í miðasöluröð á leikdag með því að nota Pyngjuna, sem er ný greiðsluleið fyrir Pepsi-deildina.
Pyngjan er app sem hægt er að nota til að kaupa miða á heimaleiki nokkurra félaga í Pepsi-deild karla og er FH þar á meðal. Hér er hægt að kynna sér þetta betur: http://www.dhs.is/

Aðrar fréttir