FH – Víkingur R
Mótherji: Víkingur R
Hvar: Kaplakrikavöllur
Hvenær: Laugardagur 9.júlí
Klukkan:16:00
Næsti leikur er á laugardaginn þegar við FH-ingar fáum Víking R í heimsókn í Kaplakrika. Þetta verður hörkuleikur og mikilvægt að strákarnir fái góðan stuðning. Mætum tímanlega á völlinn og látum vel í okkur heyra.
Allir á völlinn og áfram FH!
BAKHJARLAR BREYTING FYRIR LEIK Á MÓTI VÍKING R.
Þar sem veislusalurinn Sjónarhól er í útleigu á laugardag verða Bakhjarlar fyrir leik og í hálfleik í íþróttasalnum. Inngangurinn við Sjónarhól verður lokaður.
FH – Radio:
Okkar menn í FH – Radio verða að sjálfsögðu á vellinum á Laugardag. Slóð á útsendinguna er á facebook síðu FHingar.net
Pyngjan:
Að lokum viljum við benda FH-ingum á að nú geta allir sloppið við það að standa í miðasöluröð á leikdag með því að nota Pyngjuna, sem er ný greiðsluleið fyrir Pepsi-deildina.
Pyngjan er app sem hægt er að nota til að kaupa miða á heimaleiki nokkurra félaga í Pepsi-deild karla og er FH þar á meðal. Hér er hægt að kynna sér þetta betur: http://www.dhs.is/