Fótboltafjör í Risanum

Fótboltafjör í Risanum

Helgina 14. og 15. september er áhugasömum krökkum í yngstu flokkum fótboltans boðið á sérstaka FH-æfingu í þar sem starfið verður kynnt áður en nýtt fótboltatímabil skellur á. Fótboltaþjálfarar hjá FH taka vel á móti krökkunum, setja upp í skemmtilegar fótboltastöðvar auk þess að skemmtilegir leynigestir kíkja í heimsókn. Við hvetjum alla hressa krakka til að mæta, bæði þá sem hafa æft hjá FH og ekki síður þá sem vilja prófa fótboltaæfingu.

Stelpurnar verða laugardaginn 14. september:
8. flokkur kvenna (f. 2008 og 2009) verða frá 11.00-12.00
7. flokkur kvenna (f. 2006 og 2007) verða frá 12.00-13.00
6. flokkur kvenna (f. 2004 og 2005) verða frá 13.00-14.00

Strákarnir verða sunnudaginn 15. september:
8. flokkur karla (f. 2008 og 2009) verða frá 11.00-12.00
7. flokkur karla (f. 2006 og 2007) verða frá 12.00-13.00
6. flokkur karla (f. 2004 og 2005) verða frá 13.00-14.00
Allar æfingarnar verða í Risanum.

Að æfingu lokinni verður boðið upp á létta hressingu og geta allir fengið æfingatöflu vetrarins.

Aðrar fréttir