Frábær sigur á Akureyri fyrir norðann

Frábær sigur á Akureyri fyrir norðann

Strákarnir sýndu frábæran karakter fyrir norðann í dag gegn Akureyri er þeir sigruðu 24-20 eftir að hafa lennt 5-0 undir snemma leiks. Baldvin Þorsteinsson var markahæstur með 8 mörk þar af eitt úr víti og var hann valinn maður leiksins af Akureyringum og fékk hann fyrir það veglega körfu. Daníel Andrésson átti stórkostlegan leik og varði 24 skot.

Umfjöllun Sport.is:

FH gerði góða ferð norður yfir heiðar er liðið lagði Akureyringa að
velli með fjórum mörkum í Höllinni í kvöld en lokatölur urðu 20-24.
Akureyri byrjaði leikinn frábærlega og komst í 5-0 en FH-ingar skoruðu
ekki mark fyrstu níu mínúturnar.  Akureyri hélt forystunni til
hálfleiks en eftir það hafði FH betur á öllum vígstöðum. Daniel Freyr
Andrésson varði 23 skot í marki FH og var besti maður vallarins en
einnig átti fyrirliðinn Baldvin Þorsteinsson flottan leik fyrir
FH-inga. Fyrsti sigur Íslandsmeistaranna staðreynd og sigurinn
fyllilega verðskuldaður.

Akureyri 20-24 FH (12-11)

Akureyri byrjaði leikinn frábærlega fyrir framan fjölmarga
áhorfendur í Höllinni sem létu vel í sér heyra. Það gekk hreinlega allt
upp hjá heimamönnum fyrstu mínúturnar og eftir sjö mínútna leik var
staðan 5-0. Sveinbjörn Pétursson lokaði markinu og það skipti engu þótt
FH fékk vítakast, Sveinbjörn tók það líka en hann varði sex skot á
fyrstu tíu mínútu. Á sama tíma var markvarslan enginn hinu megin. Það
tók FH-inga níu mínútur tæpar að skora fyrsta markið en það virtist
vera það sem þurfti því eftir að ísinn var brotinn kom góður kafli hjá
Hafnfirðingum. Daníel Freyr komst í gang í markinu og Baldvin
Þorsteinsson dró vagninn í sókninni.

FH skoraði þrjú mörk í röð og breytti stöðunni í 5-3. Þegar fyrri
hálfleikur var hálfnaður var staðan 6-4 fyrir heimamenn en þá hafði
Akureyri ekki skorað í heilar níu mínútur eða síðan staðan var 5-1. FH
tókst að jafna leikinn í fyrsta sinn í stöðunni 10-10 á 27. mínútu en
norðanmenn leiddu með einu marki í hálfleik, 12-11.

FH byrjaði seinni hálfleikinn líkt og Akureyri byrjaði þann fyrri og
komust gestirnir í fyrsta sinn yfir í leiknum í stöðunni 13-14 eftir
36. mínútna leik og síðan tveimur mörkum yfir 14-16 þegar tíu mínútur
voru liðnar af seinni hálfleik. Mikill viðsúningur en svo virtist sem
mesti vindur væri farinn úr heimamönnum eftir frábæra byrjun. FH náði
þriggja marka forystu um miðjan seinni hálfleik, 15-18, og nú varð það
Daníel Freyr sem lokaði markinu fyrir framan sterka vörn FH-inga og
sama tíma lak allt inn hjá Sveinbirni hinu megin. Akureyringar misstu
svo línumanninn Hörð Fannar Sigþórsson útaf um miðjan seinni
hálfleikinn og það veikti liðið töluvert varnarlega. FH náði svo
fjögurra marka forystu í stöðunni 15-19 og komst svo fimm mörkum yfir í
stöðunni 16-21 þegar sjö mínútur voru eftir og hlutirnir litu vel út
fyrir FH.

Þegar þrjár mínútur voru eftir skoraði Baldvin Þorsteinsson 24 mark
FH og þar með var sigurinn í höfn. Tvö mikilvæg stig í hús hjá FH en
það er ljóst að Akureyri þarf að þétta hópinn saman. Útliti er fyrir að
Hörður Fannar Sigþórsson verði eitthvað frá vegna meiðsla og þá eru
Heimir Örn Árnason fyrirliði og Daníel Einarsson fyrir á sjúkralistanum
en norðanmenn söknuðu Heimis mikið í dag.

Mörk FH: Baldvin Þorsteinsson 8 (1 úr víti) Örn
Ingi Bjarkarson 5, Ragnar Jóhannsson 3, Ólafur Gústafsson 2, Atli Rúnar
Steinþórssin 2, Andri Berg Haraldsson 2, Ari Magnús Þorgeirsson 1,
Þorkell Magnússon 1.
Varin skot: Daníel Freyr Andrésson 23.

Næsti leikur er á miðvikudaginn 5. október á heimavelli gegn Val, meira um hann síðar.

Viðtöl og umfjallanir um leikinn:

http://www.sport.is/sportvarp/2011/09/29/sportvarp-baldvin-thorsteinsson-%C2%A0fh-2/

http://www.sport.is/sport

Aðrar fréttir