Frábær sigur á Haukum í 2. flokki
Fyrsti leikur vetrarins var á móti UMFA í Mosfellsbæ og höfðu strákarnir algera yfirburði í leiknum staðan í hálfleik var 7 21 og lokatölur 12 36. Frábær leikur hjá stákunum en Afturelding er með nokkuð sterkt lið í 2. flokki. Næsti leikur var heimaleikur gegn Selfoss og að lokum höfðu FH strákarnir sigur 26 23. Þriðji leikurinn var gegn Fjölni og var þar um ræða leik kattarins að músinni og niðurstaðan varð stórsigur FH-inga.
Í gærkvöldi fóru strákarnir upp á Ásvelli til að spila við Hauka. Búist var við hörkuleik eins og alltaf þegar þessi lið mætast. FH ingar mættu mjög einbeittir til leiks og tóku leikinn í sýnar hendur frá fyrstu sókn og vörn. Danni var frábær í markinu í fyrrihálfleik og FH-strákarnir gegnu á lagið og röðuðu mörkum úr hraðaupphlaupum. Aron stjórnaði sókninni mjög vel og heilt yfir spiluðu allir vel sóknarlega og varnarlega. Haukarnir komust lítið áleiðis gegn sterkri 3-2-1 vörn gestarana og það sem fór í gegn varði Danni. Staðan í hálfleik 7 18. Seinnihálfleikur var síðan aðeins formsatriði að klára og var jafnræði með liðunum nema hvað Haukarnir drógu heldur á í lokinn og lokatölur urðu 23 29. Frábær leikur hjá stráknum sem ætla sér stóra hluti í 2. flokknum í vetur. Liðin mætast svo aftur næsta laugardag í Strandgötu kl. 17:00 í síðasta leik 2. flokks fyrir áramót.