Frjálsíþrótta og heilsumámskeið

Frjálsíþrótta og heilsumámskeið

Námskeiðalýsing

Í sumar verða haldin þrjú frjálsíþrótta- og heilsunámskeið á vegum frjálsíþróttadeildar FH. Námskeiðin verða haldin á frjálsíþróttavelli félagsins í Kaplakrika. Námskeiðin eru fyrir 6-11 ára börn fædd 1999-2004, og verða haldin eftir hádegi frá kl. 13–16. Einnig er boðið upp á gæslu milli 16 og 17 fyrir þá sem vilja. Verð per barn/námskeið er kr. 4.000.
Á námskeiðunum verður farið yfir mataræði, hollustu og hreyfingu almennt. Þá eru hinar ólíku greinar frjálsíþrótta teknar fyrir, ásamt fjölmörgum leikjum. Í lok hvers námskeiðs verður uppskeruhátíð og allir fá viðurkenningarskjal. Á hverju námskeiði verður haldið frjálsíþróttamót fyrir börnin þar sem þau fá að spreyta sig ásamt því að boðið verður upp á Stórmót Gogga galvaska 26. 27. júní í Mosfellsbæ og Gaflarann 6. – 8. ágúst.

Boðið er upp á hollt nesti svo sem ávexti, grænmeti, mjólkurmat (skyr) og holla drykki.

Námskeiðin verða sem hér segir: 10.-25. júní – 28. júní – 9. júlí og 3.–13. ágúst
Hægt verður að skrá börnin á heimasíðu félagsins https://fh.is , einnig er hægt að skrá börnin á staðnum.

Upplýsingar um námskeiðin veitir Þórey Edda Elísdóttir, sími 8952705, eða í netfangi the@mi.is

Aðrar fréttir