Garðar Ingi til Gummersbach

Garðar Ingi til VfL Gummersbach
Garðar Ingi Sindrason hefur verið seldur til þýska stórliðsins Gummersbach og mun ganga til liðs við félagið í sumar. Garðar, sem er fæddur árið 2007 og uppalinn í FH, hefur staðið sig frábærlega með FH á yfirstandandi tímabili en hann hefur skorað 77 mörk og gefið 86 stoðsendingar í fimmtán leikjum í Olísdeildinni. Það má segja að Garðar hafi skotist fram á sjónarsviðið á síðasta tímabili þegar hann fékk stórt hlutverk með FH í bæði í deildinni og Evrópudeild EHF.
„Við erum virkilega stolt fyrir hönd Garðars að ganga til liðs við Gummersbach enda er um að ræða sögufrægt og gríðarsterkt lið í bestu deild heims. Við erum líka stolt af því að sjá – enn og aftur – unga leikmenn FH semja við í öflug atvinnumannalið í Evrópu en það er ekkert launungarmál að stefna handknattleiksdeildarinnar er m.a. sú að skapa eins öfluga umgjörð og tækifæri og kostur er fyrir unga leikmenn til að ná sínum markmiðum og verða atvinnumenn“ sagði Ágúst Bjarni Garðarsson formaður hkd. FH við vefmiðla FH. „Við FH-ingar viljum líka þakka Gummersbach fyrir góð og fagleg samskipti er kom að félagaskiptunum“ sagði Ágúst Bjarni að lokum.
Innilega til hamingu og gangi þér vel, Garðar!

Aðrar fréttir

Secret Link