Góður sigur á Akureyri

Góður sigur á Akureyri

FH stelpurnar áttu ekki í nokkrum erfiðleikum með lið Akureyrar í þessum leik voru með 4 marka forystu í hálfleik 11-15 og unnu að lokum öruggan og góðan sigur 20-30. Stelpurnar hafa leikið vel eftir áramót og voru nálægt því að leggja lið Stjörnunar á dögunum en töpuðu að lokum með litlum mun. Stelpurnar eru farnar að sýna það að þær standa örðrum liðum ekki langt að baki og eru líklegar til sigurs í hverjum leik.

Markaskor á Akureyri var eftirfarandi:
Ragnhildur Rósa 7 mörk
Hildur 5 mörk
Birna 5 mörk
Arnheiður 4 mörk
Hafdís 3 mörk
Gunnur 3 mörk
Guðrún 2 mörk
Ebba 1 mark

Næstu leikur hjá stelpunum er laugardaginn 8. mars gegn HK en sá leikur verður nánar auglýstur síðar. Með sigri í þeim leik geta stelpurnar náð HK að stigum og sest í 7 sæti deildarinnar.

Aðrar fréttir