Grunnskólamót Hafnarfjarðar í frjálsum íþróttum

Grunnskólamót Hafnarfjarðar í frjálsum íþróttum

Grunnskólamót Hafnarfjarðar í frjálsum íþróttum

Mótið verður haldið á frjálsíþróttavellinum í Kaplakrika laugardaginn 18. september 2004 og hefst kl. 11.00.
Mótið er fyrir nemendur í 5. bekk (fædd 1994) og 6. bekk (fædd 1993). Mótið er stigakeppni milli skóla. Hver skóli má senda 3 keppendur í hverja grein af hvoru kyni, stigin reiknast þannig að fyrsti maður fær 21 stig næsti 20 stig og koll af kolli, neðsti maður fær 1 stig. Sá skóli sem hlýtur flest stig sigrar keppnina og er Grunnskólameistari Hafnarfjarðar í frjálsum íþróttum 2004. Sigurliðið fær eignarbikar og öllum í sigurliðinu er boðið í pizzu og kók. Mótshaldari er frjálsíþróttadeild FH. Keppnisgreinar eru, 60m hlaup, langstökk, kúluvarp (2 kg) og 800m hlaup. Í hlaupunum verður rafmagnstímataka. Hver skóli er beðinn um að skrá sína keppendur í síðasta lagi föstudaginn 17. september og senda á netfangið elo@ismennt.is. Nánari upplýsingar gefur Elísabet í síma 555-4288, 848-2171. Meðfylgjandi er tímaseðill fyrir mótið.
Tímaseðill: Grunnskólamót Hafnarfjarðar í frjálsum íþróttum 18. september 2004.

Grein: 60m hlaup Langstökk Kúluvarp
Kl. 11.00 Stúlkur 5.b. Drengir 5.b. Drengir 6.b.
Kl. 11.30 Stúlkur 6.b. Drengir 6.b. Drengir 5.b.
Kl. 12.00 Drengir 5.b. Stúlkur 5.b. Stúlkur 6.b.
Kl. 12.30 Drengir 6.b. Stúlkur 6.b. Stúlkur 5.b.
Kl. 13.00 800m hlaup Drengir 5.b.
Kl. 13.10 800m hlaup Drengir 6.b.
Kl. 13.20 800m hlaup Stúlkur 5.b.
Kl. 13.30 800m hlaup Stúlkur 6.b.

Með von um góðar viðtökur,
f.h. frjálsíþróttadeildar FH
Elísabet Ólafsdóttir

Aðrar fréttir