Hafa unnið 30 leiki í röð
Strákar fæddir 1998 léku á sínu öðru deildarmóti HSÍ síðastliðna helgi. Við erum að tala um 5. flokkur yngra ár. Strákarnir gerðu sér lítið fyrir og unni alla sína leiki líkt og þeir hafa gert á öllum mótum frá því í byrjun september 2009, en þeir urðu einmitt íslandsmeistarar vorið 2010 með fullt hús stiga. Þeir hafa því unnið núna 6 deildarmót í röð með fullu húsi sem gerir 30 sigurleiki í röð. En það voru fleiri lið á þessu móti og FH2 sem lék á þessu móti í 3. deild gerði sér lítið fyrir og vann deildina og spila þeir því í 2. deild á næsta móti og það sýnir frábæra breidd að vera með lið bæði í 1. og 2. deild. Við óskurm strákunum til hamingju með frábæran árangur og vonum að þeir haldi áfram að vinna afrek saman.
ÁFRAM FH.