Hafnafjarðarmót í frjálsaum.
Hafnafjarðarmót
Hafnarfjarðarmót í frjálsum íþróttum, yngri flokka.
Verður haldið sunnudaginn 21. október í Kaplakrika kl. 15-18. Mótið er opið öllum. Ekkert þátttökugjald og keppendur skrá sig á staðnum fyrir hverja keppnisgrein.
6- 8 ára: 30 m hlaup, boltakast og langstökk án atrennu.
9-10 ára: 30 m hlaup, kúluvarp og langstökk án atrennu.
11-12 ára: 400 m hlaup, kúluvarp og langstökk án atrennu.
13-14 ára: 400 m hlaup, kúluvarp og hástökk.
Allir keppendur fá verðlaunaskjöl eftir mót með staðfestum árangri í hverri grein.
Tímaseðill verður birtur hér á heimasíðu Frjálsíþróttadeildarinnar.