Hafnarfjarðarmeistaramót í frjálsum íþróttum 14 ára og yngri..
Hafnarfjarðarmeistaramót í frjálsum íþróttum 14 ára og yngri.
Fer fram á Kaplakrikavelli 11. júlí 2002.
Mótið er fyrir börn 14 ára og yngri sem búsett eru í Hafnarfirði og hefst kl. 17:00 og stendur til 19:00.Keppt er í átta mismunandi flokkum:
5-6 ára og yngri keppa í boltakasti, langstökki og 60 m hlaupi.
7-8 ára og yngri keppa í boltakasti, langstökki og 60 m hlaupi.
9-10 ára keppa í boltakasti, langstökki og 60 m hlaupi.
11-12 ára keppa í 60 m hl., 400 m hl., kúluvarpi og langstökki.
13-14 ára keppa í 100 m hl, 400 m hl., langstökki og kúluvarpi
Skráning fer fram á staðnum hálftíma fyrir grein.
Veitt verða verðlaunaskjöl í öllum flokkum.
Mótshaldari er Frjálsíþróttadeild FH. Verum með á skemmtilegu móti.