Hafnarfjarðarmót í handbolta 24. – 26. Sept
Um helgina munu FH og Haukar í samstarfi við Hafnarfjarðarbæ standa fyrir afar sterku handboltamóti sem fram fer í Íþróttahúsinu við Strandgötu. Auk Hafnarfjarðarliðanna mæta Valsmenn og Akureyringar til leiks. Um er að ræða æfingamóti fyrir komandi átök á Íslandsmóti og eins og umræðan hefur verið í handboltaheiminum er líklegt að þessi fjögur lið muni skipa topp 4 í deildinni í vetur. Það er því mikil handboltaveisla framundan með gæða handbolta á dagskrá.
Leikáætlun er eftirfarandi:
Fimmtudagur 24. September
Kl. 18:00 FH-Valur
Kl. 20:00 Haukar-Akureyri
Föstudagur 25. September
Kl. 18:00 Haukar-Valur
Kl. 20:00 FH-Akureyri
Laugardagur 26. September
Kl. 14:00 Valur-Akureyri
Kl. 16:00 Haukar-FH
Mætum öll og styðjum FH til sigurs í lokaundirbúningi liðsins fyrir Íslandsmótið!
<p style="BACKGROUND: white; MARGIN: 0cm