Hafnarfjarðarslagurinn nálgast

Hafnarfjarðarslagurinn nálgast

Biðin er senn á enda, því n.k. laugardag kl. 15.00 í Kaplakrika fer fram stórleikur FH gegn erkifjendunum úr Haukum. FH-TíVí lét ekki sitt eftir liggja og henti í þetta líka glæsilega auglýsingamyndband. 

 

Það verður sannkölluð handboltahátið á laugardaginn í Krikanum, því kl. 13.00 mæta stelpurnar okkar Gróttu í N1-deild kvenna og kl. 15.00 verður síðan aðalréttur dagsins framreiddur, þegar flautað verður til leiks hjá FH og Haukum í N1-deild karla. Fjölmennum því á völlinn og styðjum okkar fólk. Áfram FH!

 

Aðrar fréttir