Handboltagisk – 10.umferð kvenna

Handboltagisk – 10.umferð kvenna

Eva Baldursdóttir

10.umferð í N1-deild kvenna

Giskari vikunnar að þessu sinni er Eva Baldursdóttir,
fyrrum leikmaður meistaraflokks kvenna í handknattleik og systir Rutar
Baldursdóttur sem giskaði í síðustu viku. Eva starfar í dag sem flugumferðarstjóri hjá Flugstoðum.

Spá Rutar fyrir 10.umferð N1-deildar kvenna er eftirfarandi:

Þri. 9.des.2008     19.30    Ásvellir         Haukar – HK  gisk 1
Þri. 9.des.2008     19.30    Kaplakriki     FH – Fylkir  gisk 1
Þri. 9.des.2008     19.30    Framhús       Fram – Valur  gisk X
Mið.7.jan. 2009    19.30    Mýrin           Stjarnan – Grótta  gisk 1

Það verður spennandi að sjá hvor systirin hefur betur giskinu, en því miður fáum við ekki að sjá útkomuna fyrr en í janúar hjá þeim báðum þegar Stjarnan byrjar aftur að spila í mótinu.

Fyrir næstu umferð ætlar Eva hinsvegar að senda boltann á Hjördísi Guðmundsdóttur, fyrrum markmann úr Víkingi. Hjördís sér þar með um 11.umferð deildarinnar sem er jafnframt sú síðasta fyrir jól.

Staðan í handboltagiskinu

Aðrar fréttir