Handboltagisk – 5.umferð kvenna – úrslit
Giskari
umferðarinnar að þessu sinni er Arndís Aradóttir, fyrrum leikmaður
meistaraflokks kvenna í handknattleik og systir þeirra Kristjáns
Arasonar og Kristjönu Aradóttur.
Spá Arndísar og úrslit fyrir 5. umferð N1 deildar
kvenna eru eftirfarandi:
N1 deild kvenna
Fim. 23.okt.2008 18.00 Digranes HK – Stjarnan gisk 2 úrslit 2
Lau. 25.okt.2008 13.00 Framhús Fram – FH gisk 2 úrslit 1
Lau. 25.okt.2008 16.00 Fylkishöll Fylkir – Grótta gisk 2 úrslit 2
Lau. 25.okt.2008 16.00 Vodafone höllin Valur – Haukar gisk 1 úrslit 2
Helmingurinn réttur hjá Arndísi sem er svo sem ekkert til að hrópa húrra fyrir á heildina litið, en þó 2 stigum meira en systir hennar, Kristjana Aradóttir fékk og því hlýtur þetta að teljast persónulegur stórsigur fyrir Arndísi!
Arndís kýs að skora á Sigurborgu
Eyjólfsdóttur, fyrrum hornaséní úr hinu goðsagnakennda “Golden girls” liði okkar FH-inga fyrir næstu umferð handboltagisksins.