Handbolti: 3 leikmenn að komast á fulla ferð

Handbolti: 3 leikmenn að komast á fulla ferð

Guðni Már Kristinsson leikmaður með meistaraflokki og 2. flokki karla er að komast í gang aftur eftir erfið meiðsli. Guðni hefur verið frá handboltaæfingum í tæpt ár en síðustu 3 vikurnar að komast hægt og bítandi í sitt gamla form. Í kvöld steig hann síðan inn á meistaraflokksæfingu  og sýndi þar góð tilþrif.

Brynjar Geirsson og Sverrir Garðarsson voru einnig mættir. Til gamans má geta að Sverrir er miðjumaskína og magnaður erkifjandi. Hann ætlar sér að komast á fulla ferð aftur í handboltanum en hann hefur átt við þrálát meiðsli í ökla að stríða.


Frá vinstri: Sverrir, Guðni og Brynjar.

Aðrar fréttir