Handbolti: Afturelding – FH að Varmá klukkan 19.00 í kvöld

Handbolti: Afturelding – FH að Varmá klukkan 19.00 í kvöld

Í kvöld hefst 1. deild karla með 3 leikjum sem allir hefjast klukkan 19:00. Við FHingar spilum við Aftureldingu að Varmá og má þar búast við hörkuleik. Afturelding á að enda í 1. sætinu í deildinni samkvæmt spá formanna, þjálfara og fyrirliða fyrir tímabilið. Bjarki Sigurðsson er spilandi þjálfari liðsins og hefur hann stóran hóp efnilegra stráka til að spila úr. Hjá okkur FHingum eru allir leikmenn heilir og ungu strákarnir sem eru að stíga sín fyrstu skref með meistaraflokki eru staðráðnir í að selja sig dýrt.

Hópurinn er þannig skipaður: Hilmar og Danni í markinu, útileikmenn eru Ari, Aron, Bjarni, Björn, Guðjón, Guðni, Gulli, Heiðar, Manni, Óli Heimis, Tommi og Valur.

Aðrar fréttir