Heimsóknir á frjalsar.is

Heimsóknir á frjalsar.is

Sett hefur verið upp svokölluð Livestats þjónusta sem heldur utanum allar heimsóknir sem frjalsar.is fær. Hægt verður að sjá hvar í heiminum síðan er skoðuð, hversu margir skoðuðu hana, hvaða síður voru vinsælastar og hvaða síður hafa verið minnst skoðaðar. Einnig verður hægt sjá hvaða síður framkalla villur af einhverju tagi sem ætti að gera þeim sem að mestu sjá um síðuna kleyft að lagfæra þær villur fljótt og vel. Með því að smella HÉR til hliðar þá má sjá alla tölfræðina sem verður ekki útskýrð nánar í þessari frétt. Þeir sem vilja frekari útskýringar geta sent fyrirspurn á gsmith@mmedia.is og mun verða reynt að svara eftir bestu getu.

Aðrar fréttir