Helga Vala Jónsdóttir til FH

Helga Vala Jónsdóttir til FH

Kvennaliði FH í handboltanum barst í dag mikill liðstyrkur þegar markvörðurinn Helga Vala Jónsdóttir gekk til liðs við félagið. Helga Vala sem er 22 ára gömul og kemur frá Stjörnunni hefur verið viðloðandi kvennalandsliðið síðustu ár og eru miklar vonir bundnar við hana hjá félaginu. Helga Vala er boðin velkomin í FH. 

 
Þorgeir formaður handsalar samning við Helgu Völu á dögunum

Helga Vala er annar leikmaðurinn sem gengur til liðs við kvennaliðið í sumar en áður hafði Hafdís Hinriksdóttir snúið á nýjan leik í FH. Vonast er til að hægt verði að styrkja kvennaliðið frekar á næstu misserum.

Aðrar fréttir