Hera með Íslandsmet í kringlukasti
Hera Christensen, FH, setti Íslandsmet í kringlukasti kvenna á innanfélagsmóti FH er fram fór 26. ágúst í Kaplakrika. Aðstæður voru góðar með passlegum vindi. Hún bætti metið í annarri umferð með 55,90 m og aftur í sjöttu umferð með 55,95 m.
Fyrra metið átti Thelma Lind Kristjánsdóttir, ÍR, með 54,69 m frá árinu 2018. Hera er búin að vera í mjög góðu formi í sumar. Varð m.a. önnur í Evrópubikarkeppni 3. deildar í Slóveníu í júní með 53,80 m sem var hennar besti árangur þar til í gær. Þá varð hún í 5. sæti með 53,44 m á Evrópumeistaramóti 22 ára og yngri sem fram fór í Bergen 20. júlí sl. Hera er aðeins tvítug að aldri og á sannarlega framtíðina fyrir sér. Þjálfari hennar er Eggert Bogason.