Hið árlega 7. flokks bingó á þriðjudag.

Hið árlega 7. flokks bingó á þriðjudag.

Bingóviðburður ársins fer fram næsta þriðjudag, 22. febrúar, í samkomusalnum í Kaplakrika. Þá fer fram hið árlega 7. flokks bingó, stútfullt af veglegum vinningum og fjöri.

Bingóið hefst kl 18.00 og er búið um kl. 20.00. Spjaldið kostar 500 kr. og pítsur og drykkir verða til sölu í sérstöku
bingóhléi.

Allir FH-ingar eru velkomnir á svæðið til að taka þátt í glæsilegu bingói og styðja við bakið á flokknum í leiðinni.

ÁFRAM FH!

Aðrar fréttir