Hildur Þorgeirs í eldlínunni á HM
Íslenska kvennalandsliðið í handknattleik, skipað leikmönnum 20 ára og yngri, vann alla fjóra leikina um sæti 13-20 á heimsmeistaramótinu í Makedóníu og tryggði sér 13. sætið með því að sigra Japan, 27:26.
Íslenska liðið missti naumlega af því að komast í keppnina um 12 efstu sætin en lagði síðan Kasakstan, Alsír og Makedóníu að velli, og loks Japani í leiknum í dag. Ísland var yfir í hálfleik, 15:12. Markahæstar voru Þórey Rósa Stefánsdóttir með 7 mörk og Rut Jónsdóttir með 6 mörk.
Hildur okkar Þorgeirsdóttir spilaði með liðinu alla leikina og stóð sig frábærlega, og óskum við henni hjartanlega til hamingju með þennan mikla árangur sem hún hefur náð.
Íslenska liðið vann því fimm leiki og gerði tvö jafntefli á mótinu en tapaði aðeins einum leik. Frábær árangur en liðið kom inní lokakeppnina á síðustu stundu vegna forfalla.
Til hamingu Hildur.
