HK í bikarnum í kvöld
Stelpurnar eiga í kvöld leik við HK í 16-liða úrslitum Bikarkeppninnar.
Leikurinn fer fram í Digranesi og hefst kl. 18:30.
Liðin mættust fyrir skömmu í N1 deildinni þar sem FH fór með öruggan sigur af hólmi. En þetta er Bikarinn og þar getur allt gerst eins og við vitum. Því hvetjum við alla til að mæta í Digranesið og hvetja stelpurnar áfram í næstu umferð.
Áfram FH