Hlaupahópur FH byrjar 19. janúar

Hlaupahópur FH byrjar 19. janúar

Hlaupahópur FH hefur verið stofnaður, og er fyrsta æfingin á morgun þriðjudaginn 19. janúar. 

Æfingar eru 3x í viku – þriðjudag kl. 17.30, fimmtudag kl. 17.30 og laugardaga kl. 10.00.
Hlaupið verður frá Kaplakrika. Í boði verða þrjár vegalengdir þannig að allir ættu að geta tekið þátt. Áætlað er að æfingin taki í mesta lagi klukkustund með hlaupi og teygjum.

Allir eru velkomnir, byrjendur sem lengra komnir.

Vonum að sjá sem flesta

Aðrar fréttir