Hópleikurinn byrjar 12. Janúar

Hópleikurinn byrjar 12. Janúar

Hópleikur FH

1×2 getraunir

Kæru FH-ingar, nú er enski boltinn að byrja og þá þýðir ekkert annað en að byrja að spá í leikina og vera með í skemmtilegum leik.

Hópleikurinn hefst laugardaginn 12. Janúar og stendur yfir í 17 vikur. Leikurinn er þannig að hóparnir tippa á seðil vikunar og senda raðirnar með tölvupósti elvar83@gmail.com og munum við halda utan um úrslit seðlana og setja vikulega upp stöðu deildarinnar á fh.is. Þessi leikur verður á netinu og verður einungis hægt að greiða með kreditkorti!

Vikurnar 17 eru svo lagðar saman en tvær versu vikurnar detta út, þannig að 15 bestu vikurnar gilda sem loka skor. Verðlaunin fyrir hópinn sem lendir í fyrsta sæti eru frábær ferð fyrir tvo á leik í enska boltanum að verðmæti 100.000 kr.

Algengasta leikkerfið sem er notað er 144 raðir (=1.440kr.), en þetta kerfi gefur möguleika á að tvítriggja fjóra leiki og þrítryggja tvo. Röðin kostar aðeins 10 krónur og er ekkert hámarks eða lágmarksgjald. Einu skilirðin eru að seðillinn sé opinn.

Nú er tíminn til að taka þátt í skemtilegum leik og um leið að styrkja FH.

Með FH kveðju,

Umsjónarmenn Getraunaþjónustu FH:

Elvar Ægisson og Arnar Ægisson

Aðrar fréttir