Hópleikurinn byrjar 30.ágúst!!!

Hópleikurinn byrjar 30.ágúst!!!

Kæru FH-ingar, nú er enski boltinn að byrja og
þá þýðir ekkert annað en að byrja að spá í leikina og vera með í
skemmtilegum leik.

Hópleikurinn hefst laugardaginn 30. Ágúst og stendur yfir í 17
vikur. Leikurinn er þannig að hóparnir tippa á seðil vikunar og senda
raðirnar með tölvupósti elvar83@gmail.comog
munum við halda utan um úrslit seðlana og setja vikulega upp stöðu
deildarinnar á fh.is. Þessi leikur verður á netinu og verður einungis
hægt að greiða með kreditkorti!

Vikurnar 17 eru svo lagðar saman en tvær versu vikurnar detta út,
þannig að 15 bestu vikurnar gilda sem loka skor. Verðlaunin fyrir
hópinn sem lendir í fyrsta sæti eru frábær ferð fyrir tvo á leik í
enska boltanum að verðmæti 120.000 kr.

Röðin kostar 12 krónur og er ekkert hámarks eða
lágmarksgjald. Einu skilirðin eru að seðillinn sé opinn.

Nú er tíminn til að taka þátt í skemtilegum leik og um leið að styrkja FH.

Með FH kveðju,

Umsjónarmenn Getraunaþjónustu FH:

Elvar Ægisson og Arnar Ægisson


Aðrar fréttir