HUGLEIÐINGAR UM KNATTSPYRNUAÐSTÖÐU
HUGLEIÐINGAR UM KNATTSPYRNUAÐSTÖÐU
Við FH-ingar höfum nú um 12 ára skeið rekið knatthús (knattspyrnuskjól) hér í Kaplakrika sem kallað hefur verið Risinn. Risinn er stálgrindarhús með steyptum veggjum að hluta, stálgrindin er klædd með PVC dúkefni (endingartími 40 ár ++++), framleitt af Ferrari. Dúkefnið hleypir í gegnum sig birtu. Gæða gervigras er í húsinu. Undirritaður vill í stuttu máli og almennt lýsa upplifun okkar af rekstri Risans í þessi ár ásamt því að skoða og bera saman þessa gerð húsa við gervigrasvelli utanhúss og einangraðra, full hitaðra knattspyrnuhalla.
- Stofnkostnaður (nálgun). Stofnkostnaður knattspyrnuskjóls er 130% dýrara en útivallar (flóðljós og snjóbræðsla) og stofnkostnaður einangraðs húss er 100% dýrara en knattspyrnuskjóls.
(Full vallarstærð: útivöllur 280 millj., knattsp.skjól 650 millj. og knattspyrnuhöll 1.300 millj.)
- Rekstrarkostnaður (nálgun). Rekstrarkostnaður útivallar er 35% dýrari en knattspyrnuskjóls. Rekstur knattspyrnuhallar er 150% dýrari en knattspyrnuskjóls. Hér er ekki tekið tillit til kostnaðar við mannahald og umsjón búningsaðstöðu (hluti af öðrum mannvirkjum).
(Full vallarstærð pr.ár: útivöllur 19 millj., knattsp.skjól 14 millj. og knattspyrnuhöll 35 millj.)
- Birtuskilyrði og lýsing. Eins og áður sagði hleypir dúkefni Risans í gegnum sig dagsbirtunni og þ.a.l. er notkun raflýsingar óþarfi þegar dagsbirtunnar nýtur við, einnig gerir þetta Risann mjög notendavænan yfir sumarmánuðina.
- Nýting (nálgun). Ef nýting er skoðuð yfir vetrarmánuðina má segja að nýting útivalla sé 70% (æfingum aflýst og æfingar sem ekkert vit er í vegna veðurfars) samanborið við knattspyrnuskjól. Nýtingin útivalla yfir vetrarmánuðina október til og með apríl er á bilinu 50-90%. Sama nýting er á knattspyrnuskjóli og knattspyrnuhöll. Sumarnotkun er á pari ef borin eru saman knattspyrnuskjól og útivellir en segja má að þó að það sé ekkert því til fyrirstöðu að nota knattspyrnuhallir að sumarlagi þá er reynslan hér á landi (Kórinn, Fífan og Egilshöll) sú að notkun knattspyrnuhalla er mjög lítil yfir sumarmánuðina.
- Lærdómur og upplifun iðkenda. Ljóst er að upplifun iðkenda í knattspyrnu er allt önnur og ánægjulegri við náttúruleg skilyrði en við raflýsingu. Mjög slæmt veðurfar orsakar neikvæða upplifun á útivöllum og um leið minni lærdóm, getustig stendur í stað
- Hitastig í knattspyrnuskjóli er mjög nálægt hitastigi utandyra og þ.a.l. koma dagar sem hamla iðkun vegna kulda. Reynslan varðandi Risann er nokkuð skýr, þegar lofthiti fer í -5 eða neðar eru æfingar hjá 10 ára og yngri felldar niður, eldri iðkendur klæða kuldann af sér. Ef horft er 5-6 ár aftur má segja að fjöldi niðurfelldra æfinga hjá yngstu iðkendunum sé óverulegur, innan við 1 æfing að meðaltali pr. iðkenda á vetri. Kvartanir vegna kulda í knattspyrnuskjóli koma ekki frá iðkendum, þær koma frá illa búnum foreldrum sem þrjóskast við að horfa á æfingar barna sinna. Hér má kannski bæta við svona meira í gamni en alvöru, kuldinn herðir. Einnig má geta þess að besta deildarkeppni í heimi, Premiership í Englandi er leikin yfir vetrartímann og þar fara alvöru keppnisleikir fram í frosti.
Ofangreint er byggt á reynslu okkar FH-inga af rekstri Risans, tilboðum sem okkur hefur borist og áætlunum um rekstur og stofnkostnað hinna ýmsu gerða knattspyrnuaðstöðu. Hugleiðingar þessar ber að skoða út frá staðsetningu og veðurfari hér á suðvestuhorninu.
Að lokum vil ég fullyrða að Risinn, „tjaldið“, er lykilþáttur í frábærum árangri knattspyrnunnar í Fimleikafélaginu á 21. öldinni.