Hverjir verða Íslandsmeistarar?

Hverjir verða Íslandsmeistarar?

Það ræðst á morgun hvort FH eða Keflavík verður Íslandsmeistari 2008. Í
22. og síðustu umferð taka Keflvíkingar á móti Frömurum en FH heimsækir
Fylki í Árbæinn. Keflvíkingar verða Íslandsmeistarar með því að sigra
Fram. En ef Keflvík og Fram skilja jöfn nægir FH að sigra Fylki með
tveimur mörkum til að verða Íslandsmeistarar og eins ef Keflavík tapar
nægir FH aðeins að sigra Fylki. Allir leikirnir í umferðinni hefjast
kl. 16:00 og hvetjum við alla FH-inga til að drífa sig á völlinn, mæta
tímanlega og styðja strákana til sigurs!

Aðrar fréttir