Íþróttaskóli barnanna hefst 22. janúar.

Íþróttaskóli barnanna hefst 22. janúar.

Íþróttaskóli FH hefst laugardaginn 22. janúar í Kaplakrika. Ekki var hægt að byrja fyrr vegna þess að Kaplakriki er upptekinn fyrir mót/keppnir fyrstu helgarnar í janúar. Í stað þess mun íþróttaskólinn verða lengur starfandi fram á vorið en ella.

Í íþróttaskóla FH gefst 2 til 5 ára börnum kostur á að hreyfa sig í skemmtilegu umhverfi undir leiðsögn reyndra þjálfara og foreldra.

Skólatími er á laugardögum: 2 og 3 ára börn eru frá kl: 9:30 – 10:30. 4 og 5 ára börn eru frá kl: 10:30 – 11:30

Nánari lýsingu á starfsemi skólans er að finna þegar smellt er á Um skólann.

Bestu kveðjur, starfsfólk íþróttaskóla FH.

Aðrar fréttir