Joana með slitið krossband

Joana með slitið krossband

Meistaraflokkur kvenna varð fyrir blóðtöku, nú á dögunum, þegar portúgalski miðjumaðurinn Joana Rita Nunes Paváo sleit krossbandí leik gegn Grindavík í Lengjubikarnum. 

 

Joana gekk til liðs við FH, seint á síðasta ári frá ÍR, ásamt landa sínum Liliönu Martins.  Miklar vonir voru gerðar við Jo, en hún hefur þótt standa sig vel í leikjum með liði FH á undirbúningstímabilinu.

FH-ingar senda Jo kveðjur og óska henni góðs bata.

Aðrar fréttir