Jóhannes Berg og Arna Eiríks íþróttamaður og -kona FH 2025
Kjör íþróttamanns og íþróttakonu FH var haldið í dag, mætingin var með miklum ágætum. Íþróttakarl FH 2025 er Jóhannes Berg Andrason og íþróttakona FH 2025 er Arna Eiríksdóttir. Óskar Fimleikafélagið þeim báðum innilega til hamingju og eru þau vel að þessu komin.
Örvhenta skyttan Jóhannes Berg Andrason var algjör lykilleikmaður í liði FH sem varð deildarmeistari annað árið í röð. Jóhannes var frábær á keppnistímabilinu, bæði í vörn sem sókn en hann var markahæsti leikmaður liðsins og besta hægri skytta deildarinnar. Frábær frammistaða Jóhannesar gerði það að verkum að hann gerði samning við danska atvinnumannaliðið Holstebro og hefur hann staðið sig virkilega vel á sínum fyrstu mánuðum með danska liðinu. Jóhannes Berg var valinn í 35 manna EM landsliðshóp Snorra Steins Guðjónssonar í byrjun desember sem er mikil viðurkenning.
Arna Eríksdóttir var fyrirliði FH-liðsins sem náði sínum besta árangri í tugi ára, komst í bikarúrslit og lenti í 2. sæti í Bestu deild kvenna. Þá tryggði liðið sér þátttökurétt í Evrópukeppni í fyrsta sinn. Arna var frábær í vörn liðsins, mikill leiðtogi og gekk fram með frábæru fordæmi fyrir aðra leikmenn liðsins. Frammistaða hennar með FH-liðinu í sumar gerði það að verkum að hún var seld til Vålerenga í haust ásamt því að vera valin í A-landslið Íslands.
Afreksfólk deilda:
Frjálsíþróttakona ársins: Aníta Hinriksdóttir
Frjálsíþróttamaður ársins: Hilmar Örn Jónsson
Handknattleiksmaður ársins: Jóhannes Berg Andrason
Handknattleikskona ársins: Telma Medos
Knattspyrnumaður ársins: Sigurður Bjartur Hallsson
Knattspyrnukona ársins: Arna Eiríksdóttir

F.v. Sigurður P. Sigmundsson (tók við verðlaunum Anítu Hinriksdóttur), Hilmar Örn Jónsson, Sigurður Bjartur Hallsson, Jóhannes Berg Andrason, Arna Eiríksdóttir og Telma Medos

Arna Eiríksdóttir

Jóhannes Berg Andrason