Jónas heldur betur kominn í gírinn!
Að þessu sinni var það á heimavelli, en hann keppir fyrir Berkeley háskólann í Bandaríkjunum. Jónas kastaði spjótinu 64,90 m sem er glæsilegur árangur með tilliti til þess að hann kastar ekki enn með fullri atrennu.
Jónas varð í fyrsta sæti á mótinu um það bil hálfum metra á undan næsta manni.
Það verður gríðar gaman að fylgjast með Jónasi á næstu vikum enda sýnist kappinn vera að komast í mjög gott form.