Kæru FH-ingar Getraunaleikur FH hefst laugardaginn 17. Janúar. Verðlaunin 120.000kr.

Kæru FH-ingar Getraunaleikur FH hefst laugardaginn 17. Janúar. Verðlaunin 120.000kr.

Getraunaleikur FH

1×2 getraunir

Getraunaleikurinn hefst laugardaginn 17. Janúar og stendur yfir í 17 vikur. Leikurinn er þannig að hóparnir tippa á seðil vikunnar og senda raðirnar með tölvupósti elvar83@gmail.comog munum við halda utan um úrslit seðlana og setja vikulega upp stöðu deildarinnar á fh.is. Þessi leikur verður einungis á netinu þangað til félagsaðstaða okkar kemst í lag.

Vikurnar 17 eru svo lagðar saman en tvær verstu vikurnar detta út, þannig að 15 bestu vikurnar gilda sem loka skor. Verðlaunin fyrir hópinn sem lendir í fyrsta sæti eru frábær ferð fyrir tvo á leik í enska boltanum að verðmæti 120.000 kr.

Röðin kostar 17 krónur í augnablikinu en það breytist með gengi krónunnar. Hinsvegar er ekkert hámarks eða lágmarksgjald. Einu skilyrðin eru að seðillinn sé opinn.

Nú er tíminn til að taka þátt í skemmtilegum leik, auka spennuna á meðan horft er á leikina og um leið að styrkja FH.

Ef einhverjar spurningar vakna, ekki hika við að senda mér e-mail.

 

Með FH kveðju,

Umsjónarmenn Getraunaþjónustu FH:

Elvar Ægisson og Arnar Ægisson

Aðrar fréttir