Kæru FH-ingar Getraunaleikur FH hefst laugardaginn 17. Janúar. Verðlaunin 120.000kr.

Kæru FH-ingar Getraunaleikur FH hefst laugardaginn 17. Janúar. Verðlaunin 120.000kr.

Getraunaleikur FH

1×2 getraunir

Getraunaleikurinn hefst laugardaginn 17. Janúar og stendur yfir í 17 vikur. Leikurinn er þannig að hóparnir tippa á seðil vikunnar og senda raðirnar með tölvupósti elvar83@gmail.comog munum við halda utan um úrslit seðlana og setja vikulega upp stöðu deildarinnar á fh.is. Þessi leikur verður á netinu og verður einungis hægt að greiða með kreditkorti!

Vikurnar 17 eru svo lagðar saman en tvær verstu vikurnar detta út, þannig að 15 bestu vikurnar gilda sem loka skor. Verðlaunin fyrir hópinn sem lendir í fyrsta sæti eru frábær ferð fyrir tvo á leik í enska boltanum að verðmæti 120.000 kr.

Röðin kostar 17 krónur í augnablikinu en það breytist með gengi krónunnar. Hinsvegar er ekkert hámarks eða lágmarksgjald. Einu skilyrðin eru að seðillinn sé opinn.

Nú er tíminn til að taka þátt í skemmtilegum leik, auka spennuna á meðan horft er á leikina og um leið að styrkja FH.

Ef einhverjar spurningar vakna, ekki hika við að senda mér e-mail.

 

Með FH kveðju,

Umsjónarmenn Getraunaþjónustu FH:

Elvar Ægisson og Arnar Ægisson

Aðrar fréttir