Kjartan Henry Finnbogason gengur til liðs við Fimleikafélagið

Kjartan Henry Finnbogason hefur gert samning við FH og mun spila með liðinu á næstkomandi tímabili. Kjartan þarf vart að kynna fyrir knattspyrnuáhugamönnum, hann á glæstan feril bæði hérlendis og erlendis. Kjartan hefur skorað 49 mörk í efstu deild í 133 leikjum fyrir KR ásamt því að hafa skorað 64 mörk í 151 leik í efstu og næst efstu deild í Danmörku.

Við bjóðum Kjartan hjartanlega velkominn í Kaplakrika og sjá hann spila á iðagrænum Kaplakrikavelli eftir ekki svo langan tíma.

Hér er fagmannlega staðið að hlutunum og mikil stemming í félaginu

,,Tilfinningin er rosalega góð og vel tekið á móti mér. Ég er mjög ánægður.” Sagði Kjartan Henry Finnbogason við FH Media.

En afhverju FH? ,,Það er svo margt, hér eru frábærar aðstæður, spennandi leikmannahópur og þjálfarateymi sem heillar mig mikið. Maður finnur það strax að hér er fagmannlega staðið að hlutunum og mikil stemmning í félaginu og hjá stuðningsmönnum, maður sá það t.d. vel þegar Heimir var kynntur til leiks. Mér hefur yfirleitt gengið og liðið vel i Krikanum og sé ekki afhverju það ætti að verða einhver breyting á því. Síðan skemmir ekki fyrir að það er spilað og æft í Nike treyjum, svartar og hvítar og hefð fyrir titlum.”

Hvað kemur þú með að borðinu inn í leikmannahóp FH? ,,Ég kem með reynslu sem að ég vona að ég fái að miðla áfram til þeirra efnilegu leikmanna sem að hér eru, vinnusemi og vonandi helling af mörkum. Ég geri allt til að vinna og stundum of mikið.”

Áttu einhverjar bestu og verstu minningar úr leikjum FH og KR? ,,Ég er fljótur að gleyma þessum leikjum, og ef að ég á að vera alveg hreinskilin að þá man ég ekki eftir neinni slæmri minningu úr leik gegn FH. En hinsvegar fullt af góðum. Ég var vanur að skora gegn FH en núna ætla ég mér að skora fyrir FH.”

Kjartan Henry er stór prófíll og karakter

FH Media settist niður með Heimi Guðjónssyni fyrr í dag og spurði hann út í Kjartan.

“Hann gefur liðinu aukna breidd og er góður leikmaður sem við teljum að geti hjálpað liðinu. Ég hef alltaf verið hrifinn af Kjartani sem leikmanni og því sem hann kemur með að borðinu.” En hversu mikilvægt er að fá svona sigurvegara inn í hópinn? “Auðvitað skiptir máli að vera með menn sem kunna að vinna og hafa unnið. Kjartan Henry er stór prófíll og karakter, sem getur látið gott af sér leiða til liðsins og sérstaklega til yngri leikmanna”

Heimir sagði jafnframt að aðdragandinn hafi ekki verið langur, “Við töluðum við hann á föstudaginn, áttum gott samtal og síðan fór yfirmaður knattspyrnumála í málið og kláraði það um helgina”

 

FH Media fékk einnig nokkur komment frá yfirmanni knattspyrnumála, Davíð Þór Viðarssyni;

“Við erum virkilega ánægðir að fá Kjartan Henry til liðs við okkur. Hann kemur inn í þetta fullur af eldmóði eftir síðasta tímabil þar sem spiltíminn var af skornum skammti. Hann kemur inn með mikla reynslu, sigurhugarfar og gæði. Við erum með ungt lið og Kjartan mun, ásamt öðrum reyndari leikmönnum, vera mikilvægur hlekkur í því að fá þessa ungu leikmenn til að blómstra.

Með komu Kjartans teljum við okkur vera mjög vel setta í framherjastöðunni með hann og Úlf Ágúst Björnsson sem kom virkilega sterkur inn seinni hluta tímabils í fyrra og var að framlengja við Fimleikafélagið.

Ég er handviss um það að Kjartan eigi eftir að gefa þessu FH-liði mikið á komandi tímabili, hann er mikill sigurvegari, elskar að skora mörk og er með FH „attitude“.

Velkominn Kjarri

Aðrar fréttir