Knattspyrnu og boltaskóli FH

Knattspyrnu og boltaskóli FH

Knattspyrnuskóli FH 2013

 

Námskeið hjá yngri hópi (börn fædd 2003-2007):

1. námskeið 10. – 14. júní

2. námskeið 18. – 21. júní (4 dagar)

3. námskeið 24. – 28. júní

4. námskeið 1. – 5. júlí

5. námskeið 8. – 12. júlí

6. námskeið 15. – 19. júlí

7. námskeið 12. – 16. ágúst

  • Knattspyrnuskólinn stendur yfir frá 9.00-12.00 fyrir 5-10 ára. Krakkarnir þurfa að hafa með sér hollt nesti og vera klædd eftir veðri.
  • Mögulegt er fyrir börnin að skrá sig í hádegismat að loknum Knattspyrnuskóla og fá samloku, ávexti og drykki í hádeginu. Þetta gæti m.a. nýst þeim sem fara á fótboltaæfingu eftir hádegi.
  • Boðið er upp á gæslu frá 8.00-9.00.
  • Áhersla er lögð á að þátttakendur fái verkefni við sitt hæfi. Farið verður í grunnþætti knattspyrnunnar og leikgleði höfð í fyrirrúmi. Dagskráin er brotin upp nokkrum sinnum yfir sumarið, farið í ferðir og auk þess að heimsóknir frá þekktu knattspyrnufólki verða á döfinni.
  • Verð fyrir hvert námskeið: 5000 kr.  Ef barn tekur þátt á fimm námskeiðum er það sjötta (og sjöunda) að kostnaðarlausu.
  • Skráning á námskeiðin fer fram í gegnum NORA-kerfið og hefst 15. maí næstkomandi.

 

Námskeið hjá eldri hópi (börn fædd 2000-2002)

1. námskeið 10. – 14. júní

2. námskeið 18. – 21. júní (4 dagar)

3. námskeið 24. – 28. júní

4. námskeið 8. – 12. júlí

5. námskeið 12. – 16. ágúst

  • Knattspyrnuskólinn stendur yfir frá 13.00-15.00 fyrir 10-13 ára.
  • Áhersla er lögð á að bæta tæknilega getu krakkana og verður farið markvisst í alla grunnþætti knattspyrnunnar. Unnið verður í nánu samstarfi við þjálfara 5. og 4. flokka karla og kvenna, svo álagið verði ekki of mikið á krakkana þegar kemur að leikjum og æfingum hjá flokknum.
  • Dagskráin verður brotin upp nokkrum sinnum yfir sumarið, farið í ferðir, sett upp í knattþrautir og fótboltagolfmót auk þess að heimsóknir frá þekktu knattspyrnufólki verða á döfinni.
  • Verð fyrir hvert námskeið: 5000 kr. Ef fleiri en þrjú námskeið eru sótt þá er fjórða og fimmta námskeiðið frítt.
  • Skráning á námskeiðin fer fram í gegnum NORA-kerfið og hefst 15. maí næstkomandi.

 

Boltaskólinn (börn fædd 2008 og 2009)

1. námskeið 8. – 12. júlí

2. námskeið 15. – 19. júlí

3. námskeið 22. – 26. júlí

  • Boltaskólinn stendur yfir frá 9.00-12.00. Krakkarnir &thor

Aðrar fréttir